logga

Roterande information


Bjørkhaug på Island
Thingvellir
Asgardur och Pionergruppen
Den lille Havfrue

 

På svenska

Óskar skrifar dagbók frá Svíþjóð

Föstudagur 15 nóvember 2007
Það var gaman í Noregi. Við fórum á fund i Stórþinginu en þar stóð yfir Norðurlandaráðsþing. Við hittum m.a. nokkra þingmenn frá Íslandi. Við kynntum fyrir þeim Miðgarð og framtíðarsýn í Norðurlandasamstarfi sem er að gefa fötluðum jöfn tækifæri og ófötluðum til náms og vinnu á Norðurlöndum. Þingmennirnir tóku vel í þetta verkefni og lofuðu að fleyta þessu verkefni áfram. Dropinn holar steininn. Þegar menn eru komnir til menningarborgar eins og Osló verður maður að fara á listasöfn og skoða málverk eftir helstu listamenn 17 – 20 aldar. Þegar söfnin voru fullskoðuð var næst að borða. En það er önnur saga.
Það voru næg verkefni sem biðu við heimkomuna og það var bara að stinga sér í djúpulaugina og vona að maður komist upp á endanum.
Það hefur verið svolítið kalt undanfarið og fallegur snjór legið yfir eins og teppi. Nú er mest af honum farið og kuldinn með sínar klær og frostdísirnar dreifa rósum um allt. Ég vona að þið hafið gaman af þessu.

Með kveðju Óskar.

Ljóð
Frosin rósin dettur niður úr skýjunum
Frostdísir flögra um og dreifa rósum
um snæviþakkta grund,
á meðan frostkóngur blæs þeim til jarðar


Mánudagur 15 október 2007
Dagarnir fljúga áfram, það hefur kólnað í veðri og fyrsta frostnóttin var í vikunni. Við þór Ingi fórum síðastliðin föstudag og skoðum kastala í Nyköping. Það var fróðleg skemmtun og sagan um fólkið sem þar bjó. Við borðuðum Íslenskt lamb um helgina og brúnaðar kartöflur. Fréttir hér í Svíþjóð. Maður var drepinn af Birni og hundurinn hans líka.
Við erum að vinna í skólanum á fullu.
Ég er að klára Mýrina eftir Arnald Indriðasson, hún kemur ekki á óvart.

Með krúttlegum kveðjum, Óskar

 

Valid XHTML 1.0 Transitional Valid CSS! | Om hemsidan | Hjälp | Kontakta Webmaster | © midgardur.com