Föreningar, organisationer, och myndigheter på Island
- Einstök börn er stuðningsfélag barna með sjaldgæfa alvarlega sjúkdóma. Félagið var stofnað 13.mars 1997 af foreldrum 13 barna en í dag eru í félaginu 125 fjölskyldur barna með sjaldgæfa alvarlega sjúkdóma.
- Félag áhugafólks um Downs-heilkenni. Vefurinn er ætlaður foreldrum, aðstandendum og almenningi. Tilgangur hans er að safna saman á einn stað þeim upplýsingum sem tengjast Downs-heilkenni og félaginu.
- Landssamtökin Þroskahjálp voru stofnuð haustið 1976 í því skyni að sameina þau félög, sem vinna að málefnum fatlaðra, með það að markmiði að tryggja þeim fullt jafnrétti á við aðra þjóðfélagsþegna.
- Lög um málefni fatlaðra. Markmið þessara laga er að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna og skapa þeim skilyrði til þess að lifa eðlilegu lífi.
- Hitt Húsið hefur smám saman tekið á sig þá mynd að vera menningar-og upplýsingarmiðstöð þar sem ungu fólki er veitt ýmis aðstoð og ráðgjöf, t.d. ráðgjöf til að koma hugmyndum sínum til framkvæmdar.
- SVV - Samband um vinnu og verkþjálfun veitir upplýsingar um vörur og þjónustu sambandsaðila SVV.
- Styrktarfélag vangefinna hefur frá upphafi verið brautryðjandi í þjónustu við þroskahefta, enda var brýnasta hagsmunamálið við stofnun félagsins 1958, að koma á fót og reka heimili á þessu sviði.
- Umsjónarfélag einhverfra.

Midgardur på svenska
Midgardur på dansk
Midgardur á íslensku
Midgardur på norsk
Midgardur suomi
Midgardur in English

Med stöd från Nordiska fonder